| LEIÐARVÍSIR |
| 1. | Slegið er inn orð og orðflokkur (má sleppa):
no (=nafnorð), lo (=lýsingarorð), so (=sagnorð), ao (=atviksorð),
fn (=fornafn); einnig er hægt að tilgreina kyn nafnorða:
kk (=karlkyn), kvk (=kvenkyn), hk (=hvorugkyn).
Ef merkt er í reitinn einnig gamlar orðmyndir er leitað
eftir orðmyndum sem hafa gamaldags stafsetningu (t.d. finnast þá bæði
orðin félag og fjelag). Þessar orðmyndir fylla þó sjaldan
út í fullt beygingardæmi orðsins, þ.e. líklegt er að margar myndir
vanti. |
| 2. | Smellt er á Sækja orðmyndir til að sækja
allar orðmyndir viðkomandi orðs. Þær birtast þá í reitnum Orðmyndir.
Ef einhverjar orðmyndir vantar má bæta þeim inn í reitinn. Líka má taka út
orðmyndir eftir því sem notendur kjósa.
|
| 3. | Efnisflokkur er valinn, einn eða fleiri, með
því að merkja í þá reiti. |
| 4. | Smellt er á Leita. |
Athugið
Reiturinn Orðmyndir neðst á skjámyndinni er í raun
aðalleitarreiturinn og þar þarf því að vera a.m.k. ein orðmynd til að
leit beri árangur. Þegar um er að ræða óbeygjanleg orð sem aðeins koma
fyrir í einni mynd er því nóg að slá þá mynd inn í orðmyndareitinn, en
einnig má fara að eins og lýst er hér að ofan. Aftur á móti dugir ekki
að slá orðið inn í efri reitinn (merktan "Orð") - þá verður jafnframt að
smella á Sækja orðmyndir. Einnig er athygli vakin á því að það
verður að velja a.m.k. einn efnisflokk til að leitin skili árangri.
|
|
|
Umsjón með Textasafni: Þórdís Úlfarsdóttir
Forritun og tæknivinnsla: Ragnar Hafstað
|