|
Hvernig tala ungir Íslendingar
í upphafi 21. aldar? Í sumar hefur Sigrún Ammendrup, nemi í íslensku, unnið að verkefninu Hvernig tala ungir Íslendingar í upphafi 21. aldar? undir stjórn Ástu Svavarsdóttur. Verkefnið naut styrks frá Nýsköpunarsjóði námsmanna með mótframlag úr rannsóknarverkefninu Tilbrigði í setningagerð (verkefnisstjóri Höskuldur Þráinsson). Markmið verkefnisins var að hljóðrita og skrá samtöl ungs fólks, bæði við jafnaldra sína og við sér eldra fólk, og ganga þannig frá þeim að efnið nýtist við rannsóknir, orðabóka- og kennsluefnisgerð, kennslu o.fl. ásamt öðru talmálsefni. Samtölin voru skráð í sérstöku umritunarforriti (Transcriber) en það hefur ekki verið gert áður hér á landi. Verkefninu er nú lokið og eru textaskrárnar öllum aðgengilegar í textasafni ("Samtöl ungs fólks" í flokknum "Talmál"). Einnig hefur verið komið upp heimasíðu fyrir verkefnið, með sýnishornum af bæði hljóðskrám og textaskrám, ítarlegri lýsingu á verkefninu og kynningu á umritunarforritinu. |