|
Nýtt í textasafni:
Talmálsefni
Nýr efnisflokkur hefur nú bæst
í textasafnið,
"Talmál". Um er að ræða umritanir á
rúmlega 50 klst. af töluðu máli sem var hljóðritað
á árunum 2000–2006 og unnið úr í tengslum
við rannsóknarverkefni sem starfsfólk OH hefur átt
aðild að. Gögnin geyma dæmi um talmál fjölmargra
Íslendinga á ýmsum aldri, þau eru fjölbreytt
að efni og af ýmsu tagi: opinberar umræður, samtöl
og viðtöl. Textinn er skráður nákvæmlega
eftir hljóðritunum með venjulegri stafsetningu, þ.m.t.
hikorð, endurtekningar, ófullgerð orð, frammígrip
og önnur einkenni talaðs máls.
Talmálsgögnin eiga rætur
að rekja til eftirtalinna verkefna:
- ÍSTAL
– Íslenskur talmálsbanki
(verkefnisstjóri Þórunn Blöndal), þar
sem sjálfsprottin, óformleg samtöl fullorðins
fólks voru hljóðrituð og skráð; þetta
verkefni var unnið fyrir styrk úr tæknisjóði
Rannís 1999-2000 og það vinnulag við skráningu
gagnanna sem þar var mótað hefur verið haft til
hliðsjónar við vinnslu annarra talmálsgagna.
- MIN
– Moderne importord i språka i Norden
(verkefnisstjóri Helge Sandøy), þar sem m.a. voru
hljóðrituð viðtöl við fólk um erlend
máláhrif. Leyfi fékkst til að vinna frekar
úr íslensku viðtölunum og nýta þau
til rannsókna.
- Hvernig
tala ungir Íslendingar í upphafi 21. aldar?
(Sigrún Ammendrup og Ásta Svavarsdóttir), verkefni
styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið
2006. Þar voru hljóðrituð samtöl fjögurra
ungmenna um tiltekið umræðuefni, annars vegar við
jafnaldra sinn og hins vegar við sér eldri viðmælanda,
alls 8 samtöl.
- Tilbrigði
í setningagerð (verkefnisstjóri
Höskuldur Þráinsson), sem er rannsóknaverkefni
sem nú er unnið að fyrir öndvegisstyrk frá
Rannís. Undir merkjum þess verkefnis hefur verið gengið
frá gögnum úr öðrum verkefnum, s.s. ÍSTAL
og MIN, en einnig hefur verið aflað texta frá Alþingi
og gengið frá þeim á sama formi. Ásta
Svavarsdóttir, fræðimaður á OH, hefur haft
umsjón með þeirri vinnu.
|