Hér á eftir er listi um þágufallssamsetningar í ritmálssafni Orðabókar
Háskólans.
Orðunum safnaði ég vegna greinar minnar ,,Rökleysa, lögbrot og hin
gyðjumlíka Cameron Diaz`` í Orðhaga, afmæliskveðju til Jóns Aðalsteins
Jónssonar, 12. október 2000. Í listanum eru nú 282 orð. Allar
athugasemdir og ábendingar um fleiri orð eru vel þegnar!
Orðin eru sýnd í stafrófsröð og síðan flokkuð eftir orðflokki og er þeim þá raðað eftir síðari hlutum. Fyrst eru orð þar sem síðari hluti er lýsingarháttur, þá lýsingarorð og loks eru nokkur orð þar sem þágufallssamsetningin er germynd sagnar eða nafnorð. Nokkur dæmi um sagnir í germynd og nafnorð eru höfð með í hornklofum í listanum um lýsingarhætti til að sýna hliðstæður milli orðflokka. Nokkur orð sem mynduð eru af þágufallssamsetningum, t.d. nafnorðið hugumstærð af lýsingarorðinu hugumstór, eru einnig í listanum þótt þau séu sjálf ekki eiginlegar þágufallssamsetningar.
Hverju orði fylgir skammstöfun elstu heimildar, eins og hún kemur fyrir í ritmálssafni OH, aldur elsta dæmis og dæmafjöldi. Merkið `>' er haft um 5 dæmi eða fleiri. Athugasemdir um einstök orð eru í fyrsta hluta listans þar sem orðin eru í stafrófsröð.