Nýtt ritmál á nýrri öld – Blogg og bréfaskriftir

Síðan í sumar hefur Eyrún Valsdóttir BA í íslensku unnið að verkefninu Blogg og bréfaskriftir, óútgefin skrif Íslendinga, undir stjórn Sigrúnar Helgadóttur og Ástu Svavarsdóttur. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna með mótframlagi frá Orðabók Háskólans. Markmið þess var að safna íslenskum textum í rafrænu formi og vinna úr þeim. Lagt var upp með að safna óútgefnu efni á borð við bloggtexta, stólræður presta, fréttahandrit útvarps- og sjónvarpsfrétta, tölvupóst o.fl. Slíkir textar eru oft og tíðum persónulegri skrif en venjulegt ritmál og ber þar á óformlegra máli sem minnir um margt á talmál. Viðamesti hluti verkefnisins reyndist vera söfnun bloggtextanna þar sem leitað var eftir samþykkisyfirlýsingu hvers skrifara fyrir sig. Leyfi fengust fyrir textum tæplega 70 Íslendinga og hafa textar þeirra verið færðir yfir á það form sem nauðsynlegt er til að hægt sé að nýta þá til rannsókna, orðabókagerðar og tungutækniverkefna. Textarnir eru aðgengilegir í Textasafni á síðu Orðabókarinnar, http://www.lexis.hi.is/corpus/leit.pl, en þar er efnið í sérstökum flokki sem ber nafnið Blogg 2001-2005. Einnig verða textarnir hluti Markaðrar íslenskrar málheildar, http://www.lexis.hi.is/malheild.htm, og nýtast þar með ýmsum leitar- og greiningaraðferðum. Á næstunni verður textum ætluðum til upplestrar (ræður og erindi), tölvupósti og rafrænu formi af þættinum Íslenskt mál bætt við Textasafnið.

Þó að nýsköpunarhluta verkefnisins sé nú lokið mun efnissöfnun verða haldið áfram og beinist hún að margvíslegu smáprenti sem finna má á vefsetrum stofnana og fyrirtækja og mætti kalla óútgefið efni þar sem það hefur ekki birst á prentuðu formi, s.s. bæklingum og dreifiritum.