ábúðarmikill, lo.
Orðið ábúðarmikill merkir samkvæmt íslenskri orðabók: alvörugefinn, íbygginn eða þungbúinn á svip,
þykkleitur og dimmleitur í andliti. Ábúðarmikill er þó ekki eingöngu notað um menn, það á við um
veður og veðurútlit líka, og merkir þá dimmur eða óveðurslegur. Ábúðarfullur og ábúðarlegur merkja
einnig íbygginn eða þungbúinn á svip, og dæmi OH sýna að þau eru einnig notuð um veður og
veðurútlit. Einnig geta lýsingarorð þessi átt við um fas og framkomu manna.
Nokkur dæmi úr ritmálssafni
OH:
var fálátur og ábúðarmikill svo varla fékkst orð af honum.
en þeir höfðu þá ekkert að segja eins og á stóð, flestir voru þeir ábúðarlegir undir brún en
jafnframt hýrlegir í viðmóti.
var þá þungbúið veður og ábúðarmikið og laust eldingum í fjöll.
loft var þykkt og ábúðarlegt og hrannaði loft.
þreifaði ábúðarfullur í barm sér og gaut augunum í kringum sig.
Í talmálssafni Orðabókar Háskólans eru nokkur dæmi um þessi orð. Í mörgum þeirra segir að orðin lýsi
þungbúnu veðri, að úrkoma vofi yfir eða von sé á vondu veðri. Flest dæmanna eiga þó bæði við um
menn og veður, maður getur verið þungbúinn, íbygginn, mikið niðri fyrir, reiðilegur eða fýlulegur
þegar honum er lýst sem ábúðarfullum, ábúðarlegum eða ábúðarmiklum.
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans.
- Talmálssafn Orðabókar Háskólans
- Íslensk orðabók. Ritstjóri Mörður Árnason. Þriðja útgáfa, aukin og endurbætt. Reykjavík
2002.
|