Alþjóðlegur
Orðið alþjóðlegur hefur í nútímamáli merkinguna ´sem felur í
sér tengsl milli þjóða, sem varðar alla heimsbyggðina,
sem margar þjóðir/fulltrúar margra þjóða eiga aðild að´. Þessi merking
kemur fram í samböndum eins og alþjóðlegar reglur,
alþjóðlegt samstarf, alþjóðlegt eftirlit.
Í vissu samhengi getur orðið falið í sér eins konar andstæðu við orðið
þjóðlegur og þá haft merkinguna ´sem vitnar um eða hefur
tileinkað sér það sem tíðkast/nýtur virðingar meðal þjóða heims´:
vera alþjóðlegur í hugsun/háttum.
Merking og notkun orðsins hefur á síðari tímum að miklu leyti mótast
af erlenda jafnheitinu international, sem sjá má tilgreint
til skýringar í elstu dæmum um nútímamerkingu orðsins (dæmið er úr
Fjallkonunni frá árinu 1898):
Sú merking sem hér kemur fram virðist hafa komið til sögunnar seint
á 19. öld. Um það bil öld fyrr hafði enski heimspekingurinn og
hugsuðurinn Jeremy Bentham myndað og kynnt enska orðið
international en það orð hefur síðan unnið sér þegnrétt
í fjölda tungumála.
En orðið alþjóðlegur á sér lengri sögu og aðra merkingu
í málinu. Elstu dæmi í ritmálssafni Orðabókarinnar eru frá miðri
18. öld. Á því skeiði og allt fram í byrjun 20. aldar stendur orðið
í beinum tengslum við orðið alþjóð í merkingunni ´þjóðin öll,
almenningur`, eins og eftirfarandi dæmi bera með sér (fyrsta dæmið
er frá árinu 1827, næsta dæmi frá 1844 og það síðasta frá árinu 1885):
Í orðabók sinni, sem út kom árið 1819, tilgreinir Gunnlaugur Oddsson
orðið alþjóðlegur sem jafnheiti við erlendu orðin offentlig
og national, og í Latneskri lestrarbók Jóns Þorkelssonar
frá árinu 1871 kemur orðið fram sem jafnheiti við orðið publicus,
ásamt samheitunum lýðlegur og þjóðlegur.
Segja má að tilkoma nútímamerkingarinnar, þar sem tengslin við nafnorðið
alþjóð eru rofin en forliðurinn al- fær eins konar
allsherjarmerkingu gagnvart lýsingarorðinu þjóðlegur, hafi
kippt fótunum undan eldri merkingu orðsins, enda virðist hún úr sögunni
snemma á 20. öld. Við þessa endurtúlkun verður til merking sem er nánast
gagnstæð eldri merkinu orðsins, og slíkt sambýli getur eðli málsins
samkvæmt ekki staðist til lengdar.
|