|
Atburður viðburður Orðin atburður og viðburður merkja oft það sama en eru þó notuð á mismunandi hátt. Í grófum dráttum má segja að atburður merki eitthvert einstakt atvik, svo sem sá atburður átti sér stað atburðurinn hafði mikil áhrif á heimafólk en viðburður sé frekar notað um eitthvað sem ber sjaldan við og þykir jafnvel til tíðinda, svo sem hljómleikarnir voru sögulegur viðburður það er viðburður ef hann sýnir sig. Í Orðastað (2001) segir m.a. um atburð: (<merkilegur>) atburður á/átti sér stað [ ] Það rekur hver (merkis-)atburðurinn annan, vera vitni að atburðinum, [ ] ÁKVÆÐI <óvæntur, óvenjulegur, einstæður, undarlegur, dularfullur, merkilegur, minnisstæður [ ] voveiflegur> atburður. [leturbreytingar ÓMS] Þar segir einnig m.a. um viðburð: ÁKVÆÐI (þetta er) <merkilegur, sögulegur, heimssögulegur> viðburður; árviss viðburður 2. SJALDGÆFT það er (alveg) viðburður að-S það er viðburður að hann heimsæki dóttur sína. [leturbreytingar ÓMS] Atburður er atvik eða eitthvað sem atvikast en getur þó merkt fleira, til dæmis atferli sem og dugnað eða atorku. Í Íslenskri orðabók (2000), segir um atburð: at|burður 1 viðburður, atvik merkilegur atburður með atburð fornt/úrelt ef til vill 2 tilviljun það gerðist af atburði atburðir FT 1 atferli, látæði sást það fljótt á átburðum hans að hann mundi verða góður smiður 2 dugnaður, atorka, framtak hafa atburði í sér til e-s
Nokkur dæmi úr Ritmálssafni Orðabókarinnar um atburð: *Lausnaranz lærisueinar / þa lyta og hvolfdi [:: skipi] þegar [ [...]] fimm var þar bjargað fyrir snarræði annars skips, er sigldu nærri atburðinum.Ef atburðir sem lýst er í skáldsögu eru taldir til efnis skáldsögu, þá er niðurröðun þeirra, byggingin, hluti formsins.Næsta ár fékk hann með sömu atburðum og úr sömu görðum ekki nema 1/2 tunnu.Þessir hinir breiðfirzku menn stóðu alls ekki hinum innfæddu að baki um aflabrögð eða atburði.
Viðburður er eitthvað sem ber við, getur verið tíðindi eða fyrirbæri, jafnvel tilburðir. Í Íslenskri orðabók (2000) segir um orðið viðburð:
við|burður KK1 fréttir, tíðindi það er viðburður 3 viðburðir FT viðleitni, tilburðir hafa viðburði til e-s (um fólk) framtaks- eða athafnalítill
Nokkur dæmi úr Ritmálssafni Orðabókarinnar um viðburð:
ok var sem hverr vidburdrinn æti upp annann.annar viðburður, er gerðist þarna í austurbygð.Það [::kirkjuferðin] var viðburður í vetrarfásinninu.sem munnmælin hafi öllu heldur gert sér hina seinni viðburði að yrkisefni.Málaferli eiga sér varla stað, það má teljast viðburður ef manni er stefnt fyrirsáttanefnd. að steinninn dettur, [ [...]] kalla menn í eðlisfræðinni náttúruviðburð (Naturphænomen), eða einungis viðburð (Phænomen).og sum af þilskipunum fiski svo lítid ad ei sé gagn eda sómi í vidburdum þeirra.hann snautaði burt, tuddi, og sýndi ekki meiri viðburði til þess að granda okkur.
Heimildir Ritmálssafn Orðabókar Háskólans Íslensk orðabók, tölvuútgáfa. Edda - miðlun og útgáfa. 2000. Jón Hilmar Jónsson. Orðastaður. JPV útgáfa, Reykjavík. 2001.
Ólöf Margrét Snorradóttir oms@lexis.hi.is |