|
blók kvenkyn flt. blækur Merking 1.
undirmaður, lágt settur starfsmaður Í báðum tilvikum hefur orðið niðrandi blæ. Dæmi 1. *enda var hann bara blók / á botnvörpungnum Unni. ( Ritmálssafn OH ) Ég er bara blók ! það eru blækur, sem hafa ekki nema 250 þúsund krónur í árskaup. ( Ritmálssafn OH)2. Strákurinn spratt á fætur steytti hnefanna og sagði: Heldurðu að ég sé hræddur við þig, helvítis blókin þín. ( Ritmálssafn OH) Samsetningar Í Ritmálssafni Orðabókarinnar eru allnokkur samsett orð með blók sem síðari lið: skrifstofublók, bílstjórablók , gjaldkerablók, íhaldsblók, bolsablók o.fl. Samsetningarnar hafa svipaða merkingu og stílblærinn er nokkurn veginn sá sami og á ósamsetta orðinu blók því fyrri liðurinn gegnir fyrst og fremst því hlutverki að tengja þann sem vísað er til við tiltekna starfsstétt eða hóp. Aldur og uppruni Elstu dæmi um orðið í söfnum Orðabókarinnar eru frá því snemma á 20. öld, nánar tiltekið frá 1927 og 1928. Það er tökuorð úr ensku þótt það verði engan veginn ráðið af framburði þess, ritmynd eða beygingu, jafnvel ekki í elstu dæmunum. Að baki býr enska orðið bloke 'maður, náungi' og talið er að íslenska orðið eigi rætur í máli togarasjómanna.Heimildir
Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
|