Eldri orð vikunnar

endemi endimi
hvorugkyn

Merking

eitthvað dæmalaust eða fáheyrt; skömm (oft notað sem upphrópun eða til áherslu)

Dæmi

,,Heyr á endemi , hundheiðni Mahómets maður!`` mælti töframaðurinn. ( Ritmálssafn OH )
,,En sá endemis sóðaskapur``, nöldraði Steinn. ( Ritmálssafn OH )
Mér fanst eitthvað dularfullt við þennan endemis kött. ( Ritmálssafn OH )
Verðlagning á bílum hér á landi er með slíkum endemum , að fáar þjóðir búa við slíkt ástand. ( Ritmálssafn OH )

Uppruni og aldur
Orðið er afbökun úr orðinu eindæmi . Í ritmálssafni OH eru dæmi um orðmyndirnar endemi og eindæmi síðan snemma á 17. öld.

Heimildir
- Ritmáls- og talmálssafn Orðabókar Háskólans
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon. Reykjavík: Orðabók Háskólans 1989
- Íslensk orðabók - tölvuútgáfa. Reykjavík: Edda 2000