Eldri orð vikunnar

Flensa
nafnorð, kvenkyn

Uppruni
Flensa er mikið umtöluð þessa dagana, enda margir sem liggja veikir heima með kvef, hita, höfuðverk og beinverki.

Flensa er stytting úr inflúensa, sem er tökuorð úr dönsku, influenza, en þaðan kemur það úr ítölsku, influenza sem merkir áhrif eða smitun. Miðlatneska orðið influentia er leitt af latneska orðinu influens sem er lýsingarháttur nútíðar af influere sem merkir að streyma eða þrengjast inn í. Stjörnuspekingar fyrri alda töldu sjúkdóma stafa af áhrifum stjarnanna og er þessi nafngift komin þaðan.

Elstu dæmi ritmálssafns Orðabókarinnar um flensu eru frá seinnihluta 19. aldar en elstu dæmin um inflúensu eru frá miðri 19. öld.

        Dæmi úr ritmálssafninu:

  • Flensan kemur víða við. (aldur: 19s)
  • Veikin var kölluð ,,flonsa`` eða ,,flunsa`` eða ,,flensa``, h[...] flonsan, flunsu-skrattinn eða flensu-déskotinn. (aldur: 19s)
  • að joðáburður var tekinn inn til varnar flensu. (aldur: 20s)
  • megn kvefsótt (inflúensa). (aldur: 19m)
  • influenzan, þessi illkynjaða kvefsótt, hefir gagntekið nærri því hvert einasta heimili. (aldur: 19s)
  • sagt er, að um 4/5 af eyjarskeggjum væri búnir að fá inflúenza. (aldur: 19s)
  • Gegn inflúensu, sem helst gekk á vorin [ [...]] var helsta ráðið að sauma kamfórumola fastan við innri skyrtu neðan undir hóstinu. (aldur: 20s)



Heimildir:

  • Ritmálsskrá OH
  • Ásgeir Blöndal Magnússon 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans. Reykjavík.
  • Íslensk orðabók. 3. útg. 2002. Ritstj. Mörður Árnason. Edda hf, Reykjavík.



Ólöf Margrét Snorradóttir