Eldri orð vikunnar

foreldrar 
karlkyn, fleirtala

foreldri
hvorugkyn


Merking, notkun og uppruni

Orðið foreldrar merkir sem kunnugt er 'faðir og móðir' en hvorugkynsorðið foreldri er nú einkum  notað þegar tala þarf um annaðhvort móður eða föður án þess að tiltaka hvort er; merkingin er með öðrum orðum 'móðir eða faðir'. Upprunalega eru þetta tvímyndir sama orðs sem komnar voru fram strax í fornu máli og eldri merking er 'forfeður, ætterni'; er hún merkt sem fornt eða úrelt mál í nýrri útgáfu Íslenskrar orðabókar . Óvenjulegt er að orð hafi mismunandi kyn í eintölu og fleirtölu eins og þróunin hefur orðið í þessu tilviki og í orðabókum eru þetta yfirleitt talin tvö uppflettiorð þótt form og merking séu nokkurn veginn þau sömu í báðum. Ástæða þessa misræmis í málnotkun er sú að karlkynsorðið, sem nú er nánast einrátt í fleirtölu, á sér enga eintölumynd. Þegar nauðsynlegt reynist að tala um annað foreldranna og ekki skiptir máli hvort þeirra er hefur því verið gripið til eintölu hvorugkynsorðsins frekar en að segja alltaf ,,faðir eða móðir". Hins vegar er fleirtala af hvorugkynsorðinu fátíð í nútímamáli þótt henni bregði fyrir, ekki síst í sagnfræðilegum ritum  ( Ritmálssafn OH )

Dæmi

ÞAÐ er án efa vandfundið það foreldri sem ekki hefur leitt hugann að því hvaða áhrif atvinnuþátttaka foreldra hefur á börnin. (Mbl. 1.2.2003)

sérhvert foreldri getur séð sjálft sig í þeim sporum, sem foreldrar þeirra barna, sem eiga við erfið veikindi að glíma en fá ekki viðeigandi meðferð, standa í. (Mbl. 21.2.2003)

Heimildir

Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
Ásgeir Blöndal Magnússon: Íslensk orðsifjabók
Íslensk orðabók. (tölvuútgáfa 2000)
Gagnasafn Morgunblaðsins


Ásta Svavarsdóttir