gammósíur
(gammasíur)
kvenkyn,
fleirtala
Merking
1.
háar skóhlífar (úr
gúmmí)
2.
legghlífar
3.
síðar, þröngar prjóna-
eða teygjubuxur (oft hafðar undir öðrum buxum)
Dæmi
Gottesen var þar sjálfur kominn í
fótabúnað sem þá var tíðkaður
af heldrimönnum og nefndist gammasíur.
(Ritmálssafn
OH)
Uppruni
og aldur
Tökuorð úr dönsku gamache,
gamaske
'legghlíf'; þangað er orðið komið úr frönsku
en það er ættað úr arabísku. Dæmi í
söfnum Orðabókarinnar eru frá miðri 20. öld.
Heimildir
- Ritmáls- og talmálssafn Orðabókar
Háskólans
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon.
Reykjavík: Orðabók Háskólans 1989
- Íslensk orðabók - tölvuútgáfa. Reykjavík:
Edda 2000
Ásta
Svavarsdóttir
|