|
hyrna og ferna nafnorð, kvenkyn | ||
|
Orðið hyrna er skylt orðinu horn og hefur verið notað í margs konar merkingu, m.a. um hvassa fjallstinda eins og ýmis örnefni bera vitni um (Skarðshyrna og Lýsuhyrna) og um klúta eða sjöl, einkum þau sem eru þríhyrnd (sbr. samsetta orðið þríhyrna) eða brotin í horn. Þegar fyrst var farið að selja mjólk í pappaumbúðum upp úr miðri 20. öld þurfti að gefa þessum umbúðum nafn. Í upphafi höfðu umbúðirnar aðra lögun en nú er: hornin voru fjögur og hliðarnar þríhyrndar. Var stungið upp á að kalla þær hyrnur. Þannig fékk orðið hyrna nýja merkingu sem bættist við þær sem fyrir voru og um tíma hefur það líklega verið meðal algengustu orða í daglegu tali.
Seinna breyttist lögun mjólkurumbúðanna og þær urðu kassalaga. Þá fæddi hin nýja merking orðsins hyrna af sér nýyrðið ferna, sem er skylt ýmsum orðum með forliðinn fer- 'fjór-' (ferhyrndur, ferfaldur).
Orðið ferna er ekki í elstu útgáfu Íslenskrar orðabókar (1963) en í nýjustu útgáfunni (2002) er gefin merkingin 'kassalaga ílát (úr vatnsheldum pappa)'. Nokkur dæmi eru um orðið í söfnum OH, bæði ritmálssafni og textasafni, öll tiltölulega ung. Þetta nýja orð hefur ekki orðið síður algengt en hið fyrra því ýmsar aðrar drykkjarvörur en mjólk eru nú framleiddar í fernum. Þótt hvort orð um sig feli í sér skírskotun til lögunar umbúðanna, hyrnan með þrístrendar hliðar og fernan með ferstrendar, má finna dæmi þess að bæði orðin séu notuð um drykkjarumbúðir úr pappa án tillits til lögunar þeirra:
Þarna
er orðið mjólkurhyrna notað
þótt það hljóti að vísa til ferstrends
íláts miðað við aldur dæmanna og í
síðasta dæminu sést vel að orðið ferna
er notað þrátt fyrir að umræðan beinist
að "þríhyrningslaga" umbúðum. Ekki
er ólíklegt að aldur málnotenda hafi áhrif
á orðavalið. Ungt fólk hefur ekki vanist öðru
heiti á pappaumbúðum fyrir ýmiss konar drykki
en orðinu ferna og þekkir jafnvel
ekki orðið hyrna í þessari
merkingu. Þeir sem eldri eru og þekktu mjólkurhyrnur
af eigin raun vöndust því að kalla umbúðirnar
hyrnur og hafa tilhneigingu til nota það
orð áfram þótt lögun umbúðanna
hafi breyst. Vel má því vera að sumir noti orðin
sitt á hvað sem samheiti.
Heimildir
|
||
|
|