kaffi
nafnorð, hk
Kaffi er einn vinsælasti drykkurinn í dag,
en hvað er langt síðan farið var að drekka kaffi
og hvaðan kemur það? Hver er uppruni orðsins kaffi?
Hvernig er orðið notað?
Elsta dæmi Orðabókarinnar um kaffi er frá miðri 18. öld:
ei að síður gerðum vér yður þó kost á að koma saman utan
vín til kaffe eður þvílíks, en þér afslóguð. (1766)
Eins og svo margt annað kom kaffið til Íslands frá Danmörku. Þar
í landi heitir það kaffe, en orðið er komið úr arabísku
qahwa, sem merkir jú kaffi. Kaffið er upprunnið í Arabíu,
en Arabar voru fyrstir til að nýta kaffibaunir á þennan hátt og
hefur aðferðin þróast og er nú svo komið að hægt er að velja
um margar tegundir af kaffi.
Kaffidrykkja á Íslandi hófst á 18. öld og barst sá siður frá Danmörku eins og
áður segir. Ekki hafa allir verið sammála um ágæti kaffidrykkjunnar,
eins og eftirfarandi dæmi úr ritmálssafni Orðabókarinnar sýna:
nefnum óvætti þessa, sem vér allir þekkjum:
,,kaffe
og brennivín``, sem oss eru fullt í gildi stríðs.
að draga sem mest úr kaupum hinnar útlendu óþarfavöru,
sér í lagi kaffes
og brennivíns.
Kaffidrykkja var ekki algeng, stundum aðeins á sunnudögum. Einnig
var ýmsu bætt út í kaffið til að drýgja baunirnar.
Kaffi
var lítið notað handa heimafólki nema á tyllidögum.
Þegar kaffið
steig í verði, drýgðu fátæklingar það oft með rúgi, brauðskorpum eða matbaunum.
Kaffi er einnig haft um þann tíma er kaffið er drukkið, kaffitímann.
Farið er í kaffi í vinnunni, boðið heim í kaffi og svo framvegis.
Er ekki að koma matur? - Nei, en það fer að koma
kaffi
bráðum.
Orðið kaffi er eintöluorð, það er ekki er talað um
það í fleirtölu. Sama á við um fleiri orð eins og til dæmis
fólk, hveiti, kjöt,
verð
og vinna.
Kaffisopinn hefur einnig ýmis heiti eins og sjá má í
eldra Orði vikunnar,
kaffisopinn.
Heimildir:
|