Kosningar
Sögnin kjósa heyrist og sést æ oftar þessa dagana enda er nú skammt
til kosninga. Af sömu rót og sögnin er nafnorðið kosning, sem haft
er um þá athöfn sem í sögninni felst. Fleirtölumynd nafnorðsins,
kosningar, hefur fengið þá merkingarlegu sérstöðu að vísa til
þeirrar venju í lýðræðisþjóðfélagi að almenningur ákveði með atkvæði sínu
hverjir eiga sæti á löggjafarsamkundu þjóðarinnar og í sveitarstjórnum.
Þessi sérmerking fleirtölunnar hefur sýnilega mótast á 19. öld,
þegar kosningarréttur kom til sögunnar og þjóðin fór að kjósa
fulltrúa sína til þingsetu.
Annað verknaðarnafnorð sagnarinnar kjósa frá fornu fari, sem
enn lifir góðu lífi, ekki síst í samsetningum, er orðið kjör.
Í fornmáli kemur fram enn ein nafnorðsmyndun af
sögninni, sem reyndar virðist vera ráðandi í elstu ritheimildum, en það er
karlkynsorðið kosningur. Um það orð eru dæmi allt fram á 19.
öld. Auk þess að vera haft um verknaðinn að kjósa er það í fornu máli
haft um þann sem kosinn er til einhvers hlutverks eða starfa, eins og
fram kemur í skýringu við orðið í orðabók Fritzners. Enn má bæta við orðinu
kos, sem í fornmáli kemur sem forliður í samsetningum, en
skýtur svo upp kollinum sem sjálfstætt orð á 19. öld. Eftirfarandi dæmi er
að finna í 11. árgangi Norðanfara, bls. 94:
Það er athyglisvert að fleirtölumyndin kosningar skuli hafa
greinst frá grunnmerkingu nafnorðsins á þann hátt sem raun ber vitni.
Notkun fleirtölunnar skýrist vísast af því að margir eiga hlut að
kosningunni og á þann hátt er um margar kosningar að ræða.
Sams konar merkingarsérstaða fleirtölumyndar kemur fram í orðinu
völ (fleirtölu af orðinu val) sem talsvert ber á
í ritheimildum 19. aldar en er nú horfið úr málinu. Um það má m.a.
tilgreina eftirfarandi dæmi úr Alþingistíðindum frá 1845 (fleiri dæmi
er að finna í gagnasafni Orðabókarinnar undir flettiorðinu val):
Samhliða því sem hugtakið og fyrirbærið kosningar
mótast og þroskast skýrist vitund manna um þá sem hafa rétt til þátttöku
í kosningum hverju sinni. Fyrst í stað virðist þeim ýmist
valið heitið kosningarmenn eða kjósendur en síðarnefnda
heitið er nú allsráðandi.
Það á vel við að gera þessi orð að umtalsefni nú, því að brátt rennur
upp sá dagur þegar kjósendur hafa orðið.
|