Eldri orð vikunnar

Loftkaka
nafnorð, kvenkyn

Jólaundirbúningnum fylgir kökubakstur, einkum smákökubakstur. Ein þeirra tegunda sem mikið er bökuð er loftkökur. Loftkökurnar eru búnar til úr flórsykri, eggjum og kakói og eru dísætar. Þær eru mótaðar í þar til gerðu kökumóti á hakkavél og eru holar að innan, það er þær eru fullar af lofti sem skýrir nafngiftina.

Loftkökurnar hafa einnig fleiri heiti. Mývetningar og þingeyingar hafa þessar kökur líka verið nefndar og er þá vísað í að Þingeyingar og ekki síst Mývetningar þykja montnir og fullir af lofti, hefur þá þótt sjálfsagt að nefna þessar kökur sem eru fullar af lofti eftir Þingeyingum og Mývetningum.

Annað heiti á loftkökum er vindkökur. Heimildir Orðabókarinnar benda til að vindkökur þekkist einkum á Austurlandi. Flautur og músarholur hafa einnig heyrst sem heiti á loftkökum.


       

Heimildir: