Merking og uppruni
Orðið prímus vísar til lítilla gastækja sem eldað er á, einkum í útilegum (eldri gerðir notuðu steinolíu eða bensín sem þær breyttu í gas). Elstu dæmi um orðið í seðlasöfnum Orðabókar Háskólans eru frá lokum 19. aldar svo það er allgamalt í íslensku. Þangað er það að líkindum komið úr dönsku en sama orð er einnig notað í fleiri nágrannamálum, s.s. sænsku, norsku og ensku. Upprunalega er Primus vörumerki og byggist á latneska lýsingarorðinu primus 'fyrstur'. Þetta er því dæmi um að sérnafn, þ.e.a.s. heiti á tiltekinni vörutegund, hafi smám saman orðið að samnafni sem notað er almennt um slíka hluti óháð vörumerki en slík þróun er vel þekkt í tungumálum.
Dæmi
Steinolíuvélin ,,Primus `` sem við vísindalega reynzlu bar langt af öðrum þesskonar vélum og er sú einasta sem sæmd hefir verið verðlaunum og gull og silfurmedalíum. ( Ritmálssafn OH )
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
- Íslensk orðabók. (3. útgáfa.)
Reykjavík: Edda 2002
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir
Blöndal Magnússon. Reykjavík: Orðabók
Háskólans 1989