Merking
Orðið reyfarakaup eru nú einkum notað í fleirtölu, t.d. í orðasambandinu að gera reyfarakaup í merkingunni 'að gera mjög góð kaup, kaupa á mjög hagstæðu verði'. Í eldra máli eru þó einnig dæmi um að orðið sé haft í eintölu í sömu merkingu.
Uppruni og aldur
Orðið er skylt ósamsetta orðinu
reyfari, sem í eldra máli
þýddi 'ræningi, ránsmaður' en er nú
nær eingöngu notað um ákveðna bókmenntategund,
þ.e.a.s. skemmtisögur, ekki síst sakamálasögur.
Orðið
reyfari
'ræningi' er talið vera tökuorð úr miðlágþýsku
og kemur fyrir þegar í fornu máli. Elstu dæmi Orðabókarinnar
um orðið reyfarakaup
eru aftur á móti frá miðri 19. öld og líklegra
er að það sé sniðið eftir danska orðinu
røverkøb (með sömu merkingu)
fremur en að það sé leitt beint af
reyfari 'ræningi'.
Heimildir
- Ritmálssafn Orðabókar
Háskólans
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir
Blöndal Magnússon. Reykjavík: Orðabók Háskólans
1989.
- Íslensk orðabók. Reykjavík: Edda
2002.
-Politikens
Nudansk Ordbog med etymologi. (1. útg.
; tölvuútgáfa) Kaupmannahöfn: Politikens Forlag
A/S 1999.