|
rúgbrauð nafnorð, hvorugkyn |
|
Merking og notkun Rúgbrauð er ákveðin tegund af dökku formbrauði en í óformlegu talmáli hefur orðið einnig verið notað í yfirfærðri merkingu um frambyggða sendiferðabíla sem minna á rúgbrauð í lögun. Í ritmálssafni Orðabókarinnar eru fjölmörg dæmi um orðið en flest þeirra sýna eiginlega merkingu orðsins sem ekki þarf að fjölyrða um. Nokkur dæmi eru einnig um afleiddu merkinguna og dæmi um hana má sömuleiðis finna í gagnasafni Morgunblaðsins.
Eins og dæmin sýna hefur viðurnefnið rúgbrauð einkum verið haft um eina tegund sendiferðabíla, þ.e.a.s. Volkswagen. Aldur og uppruni Elsta dæmið um orðið rúgbrauð í ritmálssafni Orðabókarinnar er frá því um miðja 18. öld og dæmi um að það sé notað um sendiferðabíla má finna frá því laust fyrir 1970. Þótt sú merking sé trúlega nokkuð eldri verður ekki sagt með vissu hvenær hún kom fyrst fram en innflutningur á bílum eins og þeim sem einkum hafa gengið undir nafninu rúgbrauð hófst 1954. Eftir því sem best er vitað kemst þessi merking orðsins fyrst í orðabækur með slangurorðabókinni 1982 og hennar er einnig getið í nýjustu útgáfu Íslenskrar orðabókar. Ekki geta Íslendingar státað af því að hafa fundið upp á líkingunni sem yfirfærða merkingin byggist á. Orðið á sér fyrirmynd í dönsku þar sem rugbrød hefur verið notað um sendiferðabíla frá því 1952 og jafnvel lengur um frambyggða sendiferðabíla. Íslenska orðið er því svonefnd "tökuþýðing". Heimildir
|
|
|