Eldri orð vikunnar

samfella
nafnorð, kvenkyn


Kvenkynsnafnorðið samfella er haft um ýmislegt sem fellt er eða fellur saman, þ.e. órofna heild af einhverju tagi, t.d.

1. um órofinn tíma, tímabil eða vegalengd:

  • Dæmi: Þá skuli eckert egg taka nockr ár, eg vil meina 10 í samfellu. (LFR IV, 223. Aldur: 18s)
  • Dæmi: um margar þíngmannaleiðir í samfellu sást ekki hæð eðr hóll. (NF XX, 26. Aldur: 19m)
2. um ósundurgreinanlegan massa af einhverju tagi:
  • Dæmi: nema þad [ [...]] hlaupi saman í køck edur þyckva samféllu. (MartEðl, 66. Aldur: 18s)
  • Dæmi: þar sem þröngt er á Seyðisfirði og lítið byggingarpláss og því heppilegt, að geta byggt sem mest í samfellu. (Alþt 1897 (A), 304. Aldur: 19s)
  • Dæmi: Almennt táknar boginn, að þær nótur, sem hann spennir yfir, skuli spila eða syngja „bundið“, þ.e. í samfellu, án þess að slíta sundur. (JÞórStafrtón , 50. Aldur: 20m)
  • Dæmi: fjórvíð samfella rúms og tíma -- Four Dimensional Space Time Continuum. (GísliHFramhnatt , 186. Aldur: 20m)
3. um heystakk (oft í fleirtölu):
  • Dæmi: í miklum rigningum á haustdag sígur samfellan mest í miðjunni. (Ísaf 1879, 102. Aldur: 19s)
  • Dæmi: drepur hey [ [...]] í görðum [ [...]] þar sem eru stórar samfellur. (Ísaf 1879, 102. Aldur: 19s)
  • Dæmi: samfellur, þ.e. tvö upphlaðin hey saman með fullri geil heys á milli. (JPAustant III, 123. Aldur: 20fm)
4. um e-ð sem haft er í órofnu samhengi:
  • Dæmi: at úgefa frumrit allra á norrænu ritaðra sögubóka í samfellu. (Fms I, 13 I. Aldur: 19f)
  • Dæmi: Þennan frumherja íslenzkrar lýðskólamenntunar skorti ekki samræmi né samfellu. (SigGuðmNorðl, 227. Aldur: 20f)
  • til þess að gera oss ljóst, hvað samfella (continuity) og ósamfella (discontinuity) eru í raun og veru. (WhitehStærð, 99. Aldur: 20f)
  • Dæmi: birtist býsna glögg og eftir atvikum samfelld saga prestsetra í öllum landshlutum, og eykur það á samfelluna, að ...(Saga 1983, 343. Aldur: 20s)
  • Þetta samvinnuverkefni gengur fyrst og fremst út á það að reyna að skapa ákveðna samfellu í uppeldi og námi barna. (Þjóðlíf 1988 10, 75. Aldur: 20s)
5. um samskeyti, t.d. í smíði:
  • Dæmi: og stálbiki rennt í allar samfellur og rifur á líkkistunum. (SpurnHeil 80. Aldur: 19f)
6. um flíkur sem settar eru saman úr því sem venjulega er meira en ein flík:
(a) um samfesting, flík sem er buxur og treyja eða bolur í einu lagi:
  • Dæmi: Bezt er að hafa ullarnærföt aðskorin, samfellu (peysu og buxur í einu lagi). (Skíðab, 149. Aldur: 20m)
(b) um pilsið sem notað er við faldbúning eða skautbúning en á 18. öld var farið að fella pils og svuntu saman í eina heild. Á faldbúningi er látið marka fyrir svuntunni með bryddingu og útsaumur eða legging á svuntunni er oft íburðarmeiri en á pilsinu. Pilsið sem haft er við skautbúning heldur samfellunafninu þótt bryddingin hverfi.
  • Dæmi: færði [::hann] henni grænt klæði í samfellu, sem hún átti að hafa í brúðarbekknum. (JÁÞj II, 524. Aldur: 19m)
  • Dæmi: Sunnudagabúningur er skautafaldur, treyja borðalögð, silfurbelti og samfella borðalögð að neðanverðu. (LandnIng II, 51 (1852). Aldur: 19m)
  • Dæmi: Þorbjörg átti fagran og merkilegan skautbúning. Samfellan var úr fínasta klæði. (ÞorlJÆv, 207. Aldur: 20m)
  • Dæmi: Önnur breyting [ [...]] var sú, að pilsið og svuntan voru felld saman í eina heild. Varð með þeim hætti til samfellan svonefnda. (EEGuðjÍslþjóð, 32. Aldur: 20s)
(c) um kvenundirflík þar sem brjóstahaldari og nærbuxur mynda eina heild.


Heimildir
Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
Íslensk orðabók, tölvuútgáfa. Edda - miðlun og útgáfa. 2000.
Elsa E. Guðjónsson. Íslenzkir þjóðbúningar kvenna. Bókaútgáfa Menningarsjóðs. Reykjavík, 1969.