Eldri orð vikunnar

skarhjálmur
nafnorð, karlkyn


Skarhjálmur er tæki eða áhald til kæfa ljós á kerti, lítill hjálmur eða hetta á grönnu skafti. Í talmálssafni Orðabókarinnar eru nokkrir seðlar um orðið en það er ekki að finna í ritmálssafni Orðabókarinnar né í þeim heimildum öðrum sem leitað var í.

 

 

Talsvert mörg önnur orð um þennan grip er að finna í fórum Orðabókarinnar:

  • ádrepa kvk.

    Orðið ádrepa í merkingunni ‘skarhjálmur’ finnst í talmálssafni Orðabókarinnar og er heimildarmaður úr Vestur-Skaftafellssýslu. Þessi merking orðsins er hvorki í ritmálssafni Orðabókarinnar né í prentuðum orðabókum.

  • kertalok hk.

    Heimildarmaður Orðabókarinnar á höfuðborgarsvæðinu (des. 1989) nefnir orðin kertalok og ljóslok sem samheiti fyrir kertaslökkvara. Orðið kertalok er ekki í ritmálssafni.

  • kertaslökkvari kk.

    Orðið kertaslökkvari finnst í öllum heimildum sem hér var leitað í. Í Íslenskri orðabók (2002) er gefin skýringin „ljóskæfa, tæki til að slökkva á kerti“. Dæmi um orðið finnast bæði í ritmálssafni og talmálssafni Orðabókarinnar.

  • ljósadrepur kk.

    Einn heimildarmaður Orðabókarinnar á höfuðborgarsvæðinu (1989) nefnir orðin ljósadrepur og ljósdrepur um kertaslökkvara. Orðið ljósadrepur er ekki í ritmálssafni.

  • ljósakæfa kvk.

    Einn heimildarmaður Orðabókarinnar úr Strandasýslu (1989) nefnir orðið ljósakæfa um skarhjálm. Í ritmálssafni Orðabókarinnar er eitt dæmi um orðið frá síðari hluta 19. aldar en þar virðist merkingin vera önnur:

    með slökkvidælur, stiga og ljósakæfur. (2.Ið.III.3i)

  • ljósaslökkvari kk.

    Orðið ljósaslökkvari er gamalt í málinu. Elsta dæmi í ritmálssafni er úr Þorláksbiblíu (1637-1644):

    Þu skallt giøra ... Liosasøx og Liosa Sløckuarann [skaraklofa Liosen ad sløckua ...]. (2Mós. 25,38)

  • ljósdrepur kk.

    Einn heimildarmaður Orðabókarinnar á höfuðborgarsvæðinu (1989) nefnir orðin ljósdrepur og ljósadrepur um kertaslökkvara. Orðið ljósdrepur er ekki í ritmálssafni.

  • ljóskæfa kvk.

    Í Íslenskri orðabók (2002) er skýringin við orðið ljóskæfa „kertaslökkvari, tæki til að slökkva ... kertisljós (e.k. málmhetta á stöng)“.

    Í ritmálssafni er orðið stakdæmi úr bókinni Skálholt. Skrúði og áhöld (Kristján Eldjárn og Hörður Ágústsson 1992) en þaðan er orðið komið úr afhendingar- og úttektarbókum Skálholtsstóls 1698 (Bps. A, VII, 3.).

  • ljóskæfir kk.

    Einn heimildarmaður Orðabókarinnar úr Vestur-Skaftafellssýslu nefnir orðið ljóskæfir um þetta áhald. Orðið er ekki í ritmálssafni.

  • ljóslok hk.

    Heimildarmaður Orðabókarinnar á höfuðborgarsvæðinu (des. 1989) nefnir orðin ljóslok og kertalok sem samheiti fyrir kertaslökkvara. Orðið ljóslok er ekki í ritmálssafni.

  • ljósslökkvari kk.

    Í ritmálssafni Orðabókarinnar eru tveir samhljóða seðlar frá fyrri hluta 18. aldar um orðið ljósslökkvari:

    litill liosslockvare giefinn af dónskumm. (Bps.AII,1498v. (1701))

  • logakæfa kvk. og logakæfir kk.

    Einn heimildarmaður Orðabókarinnar úr Vestur-Skaftafellssýslu nefnir orðin logakæfa og logakæfir um kertaslökkvara. Orðin logakæfa og logakæfir eru ekki í ritmálssafni.

  • skarhús hk.

    Í talmálssafni Orðabókarinnar er einn seðill þar sem skarhús er sagt vera sami hlutur og skarhjálmur. Í Íslenskri orðabók (2002) er skarhús hins vegar sagt vera „e.k. hólf á efra armi skarbíts sem skarið fer í þegar það er klippt af kertinu“. Þessu ber saman við Blöndalsorðabók. Í ritmálssafni er stakur seðill frá síðari hluta 19. aldar en af honum verður ekki ráðið við hvorn hlutinn er átt.

Sjá einnig orðið skarbítur.

 

Heimildir

  • Björn Halldórsson. 1992. Orðabók. Íslensk-latnesk-dönsk. Ný útgáfa, Jón Aðalsteinn Jónsson sá um útgáfuna. Orðabók Háskólans, Reykjavík. [1. útg. 1814.]
  • Íslensk orðabók, 3. útgáfa. Edda, 2002.
  • Kristján Eldjárn og Hörður Ágústsson. 1992. Skálholt. Skrúði og áhöld. Hið íslenska bókmenntafélag, Reykjavík.
  • Ritmálssafn Orðabókar Háskólans.
  • Sigfús Blöndal. 1920-1924. Íslensk-dönsk orðabók. Reykjavík.
  • Talmálssafn Orðabókar Háskólans.



Kristín Bjarnadóttir
kristinb@lexis.hi.is

Kristín Bjarnadóttir
2002-12-10