skerpla
n., kvk.
Notkun og uppruni
Skerpla er nafn á öđrum mánuđi í sumri. Hún tekur viđ af hörpu og hefst laugardaginn í 5. viku sumars, milli 19. og 25. maí. Nafniđ er ekki mjög gamalt. Ţađ er fyrst á 17. öld ađ ţađ kemur fram en í eldri rímtölum er mánuđurinn nefndur eggtíđ og stekktíđ. Ţađ nafn kemur fyrir ţegar í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu ţar sem greint er frá heitum stundanna. Ţar segir um skiptingu ársins (1949:239):
Frá jafndćgri er haust, til ţess er sól sezt í eykđarstađ. Ţá er vetr til jafndćgris. Ţá er vár til fardaga. Ţá er sumar til jafndćgris. Haustmánuđr heitir inn nćsti fyrir vetr, fyrstr í vetri heitir gormánuđr, ţá er frermánuđr, ţá er hrútmánuđr, ţá er ţorri, ţá gói, ţá einmánuđr, ţá gaukmánuđr ok sáđtíđ, ţá eggtíđ ok stekktíđ, ţá er sólmánuđr ok selmánuđr, ţá eru heyannir, ţá er kornskurđarmánuđr.
Gjarnan er vísađ í ţá séra Odd Oddsson á Reynivöllum og séra Ţórđ Sveinsson um ađ nefna annan mánuđ í sumri skerplu, en ţeir voru báđir uppi á 17. öld. Í ritmálssafni Orđabókarinnar er heimild tekin upp úr riti Páls lögmanns Vídalín, Skýríngar yfir fornyrđi lögbókar. Ţar nefnir hann einmitt séra Odd sem heimild. Í greininni Misseristaliđ og skipting ţess eftir Ţorkel Ţorkelsson (Skírnir 1928:141) eru ţessir prestar báđir nefndir sem heimildir um nafniđ:
.
Dćmi úr ritmálssafninu:
- Annar mánuđur sumars kemur laugardag; hann heitir í Eddu eggtíđ og stekktíđ; [ [...]] ţennan nefnir séra Oddur skerplu, og nokkrir fleiri kalla svo.
- tveir hinir síđarnefndu [ţ.e. sr. Oddur Oddsson á Reynivöllum og sr. Ţórđur Sveinsson] kalla nćsta mánuđ [ţ.e. eftir Hörpu] Skerplu.
Ásgeir Blöndal Magnússon (1989:841) telur af skerpla sé vísast skylt lýsingarorđinu skarpur 'beittur, hvass, harđur, skorpinn ...' og nafnorđinu skerpa sem skylt er nýnorska orđinu skjerpe 'hrjóstur, jarđţurrkur', fćreyska orđinu skerpa 'vindţurrkađ kjöt' og orđinu skärpa 'ţurrt, ófrjótt land' í sćnskum mállýskum.
Skerpla vísar ţá líklegast til lítils gróđurs ađ vori.
Heimildir:
- Ritmálsskrá OH
- Ásgeir Blöndal Magnússon. 1989. Íslensk orđsifjabók. Orđabók Háskólans, Reykjavík.
- Edda Snorra Sturlusonar. 1949. Guđni Jónsson bjó til prentunar. íslendingasagnaútgáfan, Reykjavík.
- Ţorkell Ţorkelsson. 1928. Misseristaliđ og tildrög ţess. Skírnir, 102 ár, 124-144.
|