Eldri orđ vikunnar

ţorri, kk

Ţorri er eitt af gömlu íslensku mánađarheitunum. Ţorrinn er fjórđi mánuđur vetrar og hefst á bóndadegi á föstudegi í 13. viku vetrar, sem getur veriđ á bilinu 19. – 26. janúar. Ţorranum lýkur á ţorraţrćl sem er laugardagurinn fyrir konudag og tekur ţá góa viđ.

Í íslenskri Orđsifjabók segir ađ orđiđ ţorri (miđsvetrarmánuđur) sé oftast tengt sögninni ađ ţverra en einnig ađ ţađ sé hugsanlega skylt lýsingarorđinu ţurr. Orđiđ á sér samsvörun í öđrum norrćnum tungum, svo sem fćreysku, torri, og nýnorsku torre.

Elsta dćmi Orđabókar Háskólans um vetrarmánuđinn ţorra er frá seinni hluta 17. aldar. Eins og fyrr segir er ţorri fjórđi mánuđur vetrar og hefst í janúar og er langt fram í febrúar er góa byrjar. Veđur eru oft válynd á ţessum tíma og hafa ţessir mánuđir reynst mörgum erfiđir einkum fyrr á öldum er fariđ var ađ ganga á matarforđann og kuldar voru miklir. Máltćkiđ ađ ţreyja ţorrann og góuna, er merkir ađ ţola tímabundna erfiđleika, tengist einmitt ţví ađ lifa af ţessa vetrarmánuđi en er einmánuđur tók viđ af góu var stutt í sumarmánuđina. Kristján Jónsson lýsir ţorranum, og ţeirri tíđ er menn máttu ţola í ţeim mánuđi, vel í ljóđi sínu Ţorraţrćll (Nú er frost á Fróni).

Mánađarheitiđ ţorri er sennilega ţekktast af gömlu mánađarheitunum í dag ţví hann tengist ýmsum hefđum sem enn er viđhaldiđ eins og bóndadegi, en ţá tíđkast ađ gefa bóndanum blóm eđa gera vel viđ hann á annan hátt. Ţorramaturinn er kominn í búđir áđur en ţorrinn sjálfur gengur í garđ og finnst mörgum ómissandi ađ gćđa sér á gómsćtum hrútspungum, lundabagga, hákarli, og fleiru. Landsmenn gera sér glađan dag á ţorrablótum međ ţví ađ snćđa ţorramat í ómćldu magni og hlýđa á skemmtiatriđi ýmiskonar.

Forníslenskt tímatal var reiknađ í vikum og misserum. Sumarmánuđurnir eru: harpa, skerpla, sólmánuđur, heyannir, tvímánuđur, haustmánuđur. Vetrarmánuđurnir eru: gormánuđur, ýlir, mörsugur, ţorri, góa, einmánuđur.

Heimildir

Íslensk orđabók. 3ja útg. 2002

Íslensk orđsifjabók. 1989

Ritmálssafn Orđabókar Háskólans

Ólöf Margrét Snorradóttir

oms@lexis.hi.is