tyggigúmmí, tyggjó
hvorugkyn

Merking

Mjúkt, teygjanlegt efni, oftast sætt og með bragðefni (t.d. piparmyntu), ætlað til að tyggja.
Dæmi

í Reykjavík þar sem ungar stelpur jórtra tyggigúmmí upp á líf og dauða..(Ritmálssafn OH)

Uppruni og aldur
Tyggigúmmí kom fyrst á markað í Bandaríkjunum skömmu eftir 1870 og heitir chewing gum á ensku. Talið er að íslenska orðið sé tökuþýðing á danska orðinu tyggegummi, en það er aftur bein þýðing á enska orðinu og þýðing af þessu tagi er notuð sem heiti á efninu í flestum evrópumálum. Elsta dæmi um orðið tyggigúmmí í söfnum Orðabókarinnar er úr Speglinum frá 1929.

Áður en íslenska orðið festist í sessi brá fyrir ýmsum afbrigðum af því. Í söfnum Orðabókarinnar má m.a. finna myndirnar tuggugúmmí (frá 1932), tuggugúm og tyggigúm

Heimildir
- Ritmáls- og talmálssafn Orðabókar Háskólans
- Íslensk orðsifjabók eftir Ásgeir Blöndal Magnússon. Reykjavík: Orðabók Háskólans 1989
- Íslensk orðabók - tölvuútgáfa. Reykjavík: Edda 2000

Ásta Svavarsdóttir