|
urmull
nafnorð, karlkyn
Notkun og merking
Nafnorðið urmull merkir tvennt í nútímamáli:
- aragrúi, mikill fjöldi
Dæmi:
- í bökkum við Þverá nálægt Neðranesi er mesti urmull af smáskeljum
- Bókina prýðir urmull mynda, sem margar hverjar hafa ekki birst áður
- leifar, minjar um e-ð (oft notað með neitun: ekki/enginn urmull)
Dæmi:
- ekki fannst urmull af mönnunum né farangri þeirra
- Ekki dettur mér í hug að það sé urmull af honum Munda undir þessu leiði
Saga og uppruni
Ekki er vitað til að urmull komi fyrir í fornmáli en elsta dæmið í ritmálssafni OH
er frá 16. öld. Þar er reyndar um að ræða orðmyndina
örmull sem
tíðkaðist jafnframt
urmull a.m.k. fram á miðja 20. öld. Ekki
kemur fram neinn munur á merkingu þessara tveggja orðmynda, í orðasafni frá 1705
eru t.d. báðar merkingarnar tilgreindar við örmull (aurmull):
margfiöldi, edur miög lijted, sem næsta eckert er effter af (Jón Helgason 1960:273)
Eitthvað hefur þetta reik á bæði rithætti og merkingu farið í taugarnar á reglusömum
málfræðingum á 19. öld, a.m.k. segir Halldór Kr. Friðriksson í Réttritunarreglum
sínum (1859:73)
Jeg held rjettast, að rita örmull, þegar það merkir
leifar, en urmull, er það merkir fjöldi
E.t.v. hafa fleiri verið sama sinnis, a.m.k. merkir örmull
oftar 'leifar' en 'fjölda' í dæmum ritmálssafns OH.
Enn er ógetið tveggja orðmynda af sama meiði, þ.e.
örmul og
örmol, hvorttveggja fleirtöluorð í hvorugkyni.
Dæmi:
- Aldrei sáust nokkur örmul eftir af kænunni
- urðu menn einskis vísari um það, hvar stúlkan væri niður komin, með því engin örmol sáust
Í ritmálssafni eru dæmi um þessar myndir frá 17. öld og fram á þá 20., oftast í merkingunni 'leifar'
en þó kemur hin merkingin fyrir.
Í Orðsifjabók Ásgeirs Blöndal Magnússonar segir að upphafleg merking orðsins
sé 'mylsna, smábrot, smælki' og séu báðar merkingarnar af því leiddar.
Þar segir líka að orðmyndin sem nú tíðkast, urmull, sé ummyndun úr
örmul, hvorugkynsorðinu sem fyrr var nefnt, og
sé það leitt af frumgermanskri sögn *uzmuljan sem á að hafa
merkt 'mylja í smátt'. Sú forna sögn mun enn eiga sér beinan afkomanda í þýskum
mállýskum: ermüllen.
Seinni parturinn -mul(l) í urmull á því
skylt við orð eins og mylja, möl og fleira
þessháttar, en fyrri hlutinn ur-/ör- er forskeyti.
Heimildir:
- Söfn Orðabókar
Háskólans.
- Ásgeir Blöndal Magnússon
1989. Íslensk orðsifjabók.
Orðabók Háskólans.
Reykjavík.
- Halldór Kr. Friðriksson. 1859. Íslenzkar rjettritunarreglur. Reykjavík.
- Jón Helgason. 1960. Fem islandske ordsamlinger fra 18. og 19. århundrede.
Bibliotheca Aranmagnæana XX: Opuscula I, bls. 271-299.
Aðalsteinn Eyþórsson
|