Eldri orð vikunnar
Orð vikunnar
verð, hk. Orð vikunnar að þessu sinni er orðið verð. Nafnorðið verð er eintöluorð, það er tekur ekki fleirtölu eins og flest nafnorð. Mikið ber þó á fleirtölunotkun á orðinu, einkum í auglýsingum. Hér að neðan eru stjörnumerkt dæmi röng. Í íslensku eru nokkur nafnorð sem aðeins eru til í eintölu, það er hafa ekki fleirtölu. Þetta eru orð eins og fiður, fólk, kaffi, kjöt, nám, verð og vinna. Þó svo eintöluorð hafi ekki málfræðilega fleirtölu (það er beygjast ekki í fleirtölu) getur merking þeirra verið í fleirtölu og þau standa oft fyrir eitthvað sem ekki er teljanlegt, þó sum tákni líka eitthvað eitt. Lýsingarorð sem standa með eintöluorðum þurfa að vera í sama falli og tölu og orðið sjálft, hvort heldur það segi til um magn einhvers, gæði eða útlit, til dæmis er talað um mikið fiður, margt fólk, gott kaffi, lítið kjöt, margvíslegt nám, mismunandi verð og mikla vinnu.
Oft má sjá auglýst *góð verð *frábær verð *öll verð *mörg verð
Þessi notkun brýtur í bága við eðli eintöluorða og gegn málfræðireglum, rétt er að segja gott verð frábært verð allt verð
Þó svo að margar vörur séu í boði sem ekki kosta allar það sama, hver vara hefur sitt verð, skal alltaf nota eintöluna. Til hliðsjónar má nefna orðin kaffi og kjöt, ekki samþykkja margir að tala um *dýr kaffi eða *vond kjöt, heldur notum við eintöluna, dýrt kaffi og vont kjöt.
Orðið verð beygist svona: nf. verð verðið þf. verð verðið þgf. verði verðinu ef. verðs verðsins
|