Versla
Í viðskiptasamfélagi nútímans skipar sögnin
versla og sú athöfn sem í henni felst mikilvægan sess.
Notkun sagnarinnar tengist tvenns konar hlutverki þess sem verslar.
Annars vegar er sá sem býður fram vöru eða varning og er í hlutverki
seljanda þegar viðskipti fara fram. Hins vegar er sá sem leitar kaupa á
vörunni og er þar með í hlutverki kaupanda. Lítið fer fyrir sögninni
versla í rituðum heimildum fyrr en komið er fram á 19. öld þótt hennar
verði vart í eldri ritum, allt frá 15. öld a.m.k. Lengi framan af virðist
sögnin einkum vera bundin fyrrnefnda hlutverkinu, og er þá m.a. tekið
svo til orða að menn versli vöru sinni eða varningi.
Í öðrum samböndum getur sögnin átt við vöruskipti þeirra sem í hlut eiga,
getið er um stúlkur sem versla hári sínu í peninga og á öðrum
stað er fiski verslað á móti smjöri. Þessi notkun kemur skýrt
fram í dæmum um sögnina versla í gagnasafni Orðabókarinnar.
Notkun sagnarinnar með nafnorði í þágufalli (um það sem boðið er
til sölu) er ókunnugleg í nútímamáli, þótt kaupmenn versli vissulega enn
á Laugaveginum og þar sé verslað með margvíslegan varning. En fleira hefur
breyst í hegðun sagnarinnar og í því sambandi er mikilvægt að hugsa
til þeirra breytinga sem orðið hafa á öllum verslunarháttum
á síðustu áratugum og reyndar einnig á viðhorfum manna til verslunar.
Notkun sagnarinnar versla endurspeglar nú æ skýrar þá hugmynd að
neytandinn, sá sem falast eftir vörunni, gegni aðalhlutverki, athöfnin
og viðfangsefnið sé hans fremur en þess sem býður vöruna eða varan er
keypt af. Um leið og verslun og verslunarrekstur hefur fengið
ópersónulegra yfirbragð hafa verslunarferðir orðið fyrirferðarmeira
og margþættara viðfangsefni en áður, sem að nokkru leyti felur í sér
dægradvöl og afþreyingu. Þessi hugmynd birtist m.a. skýrt í auglýsingum
þar sem fólk er hvatt til að versla sér til ánægju og skemmtunar.
Athyglisvert er að þessi áhersla á hlutverk neytandans hefur haft
áhrif á setningarlega stöðu sagnarinnar. Á sama hátt og meginmerkingin
í eldra máli kallaði á þágufallsandlag um það sem boðið er fram
(versla vöru sinni/varningnum) bregður nú æ oftar fyrir
þolfallsandlagi um það sem menn fá eða afla sér, þeim fjölgar sem
versla hlutabréf, aðrir leggja leið sína í verslunarmiðstöðvar
til að versla (sér) föt. Dæmi af þessu tagi reynast vera
fyrirferðarmikil þegar litið er á notkun sagnarinnar á netinu.
Þær breytingar sem orðið hafa á notkunarháttum sagnarinnar versla
eru gott dæmi um það hvernig þjóðfélagslegar hræringar og ný viðhorf
geta mótað og umskapað merkingu orða, oft á býsna hljóðlátan hátt.
|