|
Orð og tunga |
|
|
Ritstjóri Ritstjórn
|
Tímaritið
Orð og tunga er gefið út af
Orðabók Háskólans og birtir greinar á
fræðasviði stofnunarinnar, einkum um orðabækur
og orðabókafræði en einnig um orðfræði,
einkenni og sögu íslensks orðaforða, afmarkaðs
hluta hans eða einstakra orða. Enn fremur birtast í hverju
hefti greinar um fyrirfram ákveðið þema sem byggjast
á framsöguerindum og umræðum á málstofu
sem efnt er til fyrri hluta ársins. Auk fræðigreina birtir
tímaritið fræðilega ritdóma og umsagnir um
orðabækur, handbækur og önnur verk sem snerta fræðasvið
þess, kynningar á orðabóka- og rannsóknaverkefnum
sem unnið er að og fréttir um ráðstefnur, fundi,
ný og áhugaverð rit á fræðasviðinu
o.fl. Gert er ráð fyrir að greinar séu að jafnaði
skrifaðar á íslensku en einnig verða birtar greinar
á ensku, dönsku, sænsku og norsku. Hverri grein fylgir
stuttur útdráttur um efni hennar og helstu niðurstöður
á ensku; sé greinin rituð á erlendu máli
er útdrátturinn á íslensku. Orð og tunga
er ársrit og er miðað við að það komi
út síðla hausts.
|