|
Textasafn |
|
|
Umsjónarmenn Aðalsteinn Eyþórsson og Þórdís Úlfarsdóttir
|
Í
textasafni Orðabókarinnar eru gamlir og nýir textar af
ýmsum toga sem skiptast á 23 efnisflokka, samtals um 52 milljónir
lesmálsorða. Meðal efnisflokka má nefna fornrit, trúmál,
skáldverk, sagnfræði, raungreinar og dagblöð.
Textasafnið er mikilvægt hjálpargagn þeim sem fást
við málfræðirannsóknir, s.s. beygingarfræði,
setningarfræði og orðabókarfræði, einnig
orðtíðnikannanir o.fl.
Byrjað var að nota textasafnið kringum 1990 en í september 2004 var tekinn í notkun vefaðgangur að efni safnsins frá heimasíðu Orðabókarinnar. Vegna höfundarréttar er almennur aðgangur að safninu takmarkaður við texta fornrita (þ. á m. Íslendingasagna), Lagasafnið, Biblíuna og fáeina aðra texta. Skrá um rit sem eru opin til leitar í textasafni
|